top of page
Dropinn aðalLogo JPG-02_edited.jpg
Search

Útilega Dropans 2025

Kæru foreldrar,

Við viljum upplýsa ykkur um að Dropinn hefur tekið frá tjaldsvæðið í Þykkvabænum fyrir félagsmenn helgina 28.–30. júní. Öllum félögum og fjölskyldum þeirra er boðið að koma og njóta dvalar á tjaldsvæðinu frá föstudegi til sunnudags. Dropinn mun standa straum af dvalarkostnaði – það eina sem þarf að gera er að láta starfsfólk svæðisins vita að þið séuð á vegum Dropans.

Auk þess hefur Dropinn tekið á leigu íþróttahúsið á svæðinu. Foreldrar eða forráðamenn sem vilja nýta húsið með börnum sínum geta fengið lykil hjá umsjónarmanni svæðisins. Mikilvægt er að sá sem tekur við lyklinum beri ábyrgð á góðri umgengni og að húsið sé skilað í því ástandi sem það var í við afhendingu.

Við vonum innilega að sem flestir sjái sér fært að taka þátt og njóta samverunnar í notalegu umhverfi. Þótt skráning hafi verið heldur minni en vonast var eftir í fyrstu, sjáum við þetta sem tækifæri til að skapa góða upplifun fyrir þá sem mæta – og skoðum aðrar útfærslur fyrir næsta ár ef þess gerist þörf.

Með bestu kveðju,

f.h. stjórnar

Birgir HilmarssonFormaður Dropans

 
 
 

Recent Posts

See All
Aðalfundur 2026

Aðalfundur Dropans fór fram í gær , laugardaginn 17.01.2026 að Hátúni 6a, Á fundinum var kosin ný stjórn en hana skipa: Birgir Hilmarsson, formaður Ólína Halla Magnúsdóttir, gjaldkeri Ásgerður Inga St

 
 
 
Aðalfundur 2026

Stjórn Dropans boðar til aðalfundar laugardaginn 17.janúar kl 16:00, 2026 Fundurinn verður haldinn í að Hátúni 6a, efri hæð, sal Lögreglufélagsins Á dagskrá fundarins er meðal annars: Lögbundin aðalfu

 
 
 
Sumarferð 2026

Sæl öll. Nú er komið að skráningum í sumarferð Dropans sumarið 2026. Farið verður til Danmerkur dagana 12.-17. júní nk. Nánari ferðatilhögun kemur síðar. Börn sem fædd eru á árunum 2008-2012 komast í

 
 
 

Comments


Dropinn_aðalLogo_JPG-02-removebg-preview.png

Dropinn, styrktarfélag sykursjúkra barna 

Furuhlíð 6
221 Hafnarfjörður
dropinn@dropinn.is

  • Instagram
  • Facebook
  • Youtube
Skráning á póstlista

Takk fyrir skráninguna

©2024 by Dropinn.is

bottom of page