top of page
Dropinn aðalLogo JPG-02_edited.jpg
Search

Töskur í ferðalagið

„ Dropinn lánar ferðatösku eða bakpoka fyrir búnað tengdum sykursýkinni

Við hjá Dropanum höfum nú keypt eina handtösku og tvo bakpoka sem félagsmenn geta fengið lánaða þegar ferðast er innanlands eða erlendis.

Margir foreldrar þekkja hversu mikið pláss getur farið undir búnað sem tengist sykursýki barnsins – blóðsykurmæla, skynjara, dælu, varahluti, þrúgusykur ávaxtasafa og annað sem mikilvægt er að hafa meðferðis. Með þessum töskum viljum við gera ferðalögin aðeins auðveldari og þægilegri.

 Hentar vel í sumarfrí, helgarferðir, keppnisferðir og utanlandsferðir.

 Sérstaklega ætlað fyrir búnað tengdan sykursýki.

 Hægt að leigja frá nokkrum dögum og allt að 4 vikum í senn.

 Leiguverð: 10.000 kr.

 Þar af eru 5.000 kr. tryggingargjald sem er endurgreitt þegar töskunni eða bakpokanum er skilað heilum og hreinum til baka.

Við hvetjum ykkur til að hafa samband tímanlega ef þið eruð að skipuleggja ferð.

Fyrir nánari upplýsingar eða bókun sendið skilaboð á Dropinn@Dropinn.is

Við vonum að þessi þjónusta létti undir með fjölskyldum og geri ferðalögin aðeins áhyggjulausari.

f.h stjórnar

Birgir Hilmarsson

formaður


 
 
 

Recent Posts

See All
Aðalfundur 2026

Aðalfundur Dropans fór fram í gær , laugardaginn 17.01.2026 að Hátúni 6a, Á fundinum var kosin ný stjórn en hana skipa: Birgir Hilmarsson, formaður Ólína Halla Magnúsdóttir, gjaldkeri Ásgerður Inga St

 
 
 
Aðalfundur 2026

Stjórn Dropans boðar til aðalfundar laugardaginn 17.janúar kl 16:00, 2026 Fundurinn verður haldinn í að Hátúni 6a, efri hæð, sal Lögreglufélagsins Á dagskrá fundarins er meðal annars: Lögbundin aðalfu

 
 
 
Sumarferð 2026

Sæl öll. Nú er komið að skráningum í sumarferð Dropans sumarið 2026. Farið verður til Danmerkur dagana 12.-17. júní nk. Nánari ferðatilhögun kemur síðar. Börn sem fædd eru á árunum 2008-2012 komast í

 
 
 

Comments


Dropinn_aðalLogo_JPG-02-removebg-preview.png

Dropinn, styrktarfélag sykursjúkra barna 

Furuhlíð 6
221 Hafnarfjörður
dropinn@dropinn.is

  • Instagram
  • Facebook
  • Youtube
Skráning á póstlista

Takk fyrir skráninguna

©2024 by Dropinn.is

bottom of page