
Lög Dropans
1. gr.
Félagið heitir, Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki. Það skal vera í samstöðu og samstarfi við Diabetes Ísland.
Mun stjórn Dropans tilnefna a.m.k. einn fulltrúa í stjórn Diabetes Ísland.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
Að veita öðrum foreldrum stuðning.
Að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga við að leita réttar síns.
Að upplýsa um stöðu sykursjúkra og vekja athygli á hagsmunasamtökum þeirra.
Að sjá um félagsstarf fyrir sykursjúk börn og unglinga.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná á eftirfarandi hátt:
Að vera stuðningur við foreldra sykursjúkra barna.
Að miðla fræðslu til foreldra, t.d. með því að kynna nýjungar í málefnum sykursjúkra og greina frá stöðu og þróun mála hverju sinni.
Að standa vörð um réttindi foreldra sykursjúkrabarna, hvað varðar umönnunarbætur o.fl.
Að annast fræðslu og upplýsingamiðlun til félagsmanna, almennings og skóla um sykursýki.
4. gr.
Félagar geta þeir orðið sem eiga eða hafa börn/unglinga með sykursýki á framfæri sínu. Einnig er öllum sem vilja styrkja og starfa með félaginu velkomið að gerast Vinir Dropans.
5. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm félagsmenn, fimm í aðalstjórn. Skal kjörtímabil þeirra vera tvö ár. Stjórnarmenn skulu eiga börn í Dropanum. Skulu þeir kosnir skriflega á aðalfundi, fyrst formaður, síðan stjórnarmenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Hún getur falið einstökum félagsmönnum að vinna verk í þágu félagsins og skipað nefndir í sama tilgangi.
6. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn í byrjun árs ár hvert.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu ári. Lagabreytingar Kosin stjórn samkvæmt 5. grein laganna. Önnur mál.
Aðalfundur félagsins er því aðeins lögmætur að hann sé löglega boðaður með viku fyrirvara. Dagskrár aðalfundar skal nánar getið í fundarboði. Tillögur um lagabreytingar, sem óskað er að verði lagðar fyrir aðalfund til ákvörðunar, skulu hafa borist stjórn þremur vikum fyrir aðalfund. 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til breytinga.
7. gr.
Félagar eru sjálfkrafa félagar í Diabetes Ísland í Reykjavík eða á Akureyri og innheimtast félagsgjöld þar. Félagið getur einnig gerst aðili að öðrum samtökum innlendum og erlendum sem vinna að hagsmunamálum sykursjúkra barna og unglinga samkvæmt samþykkt félagsfundar.
Samþykkt á aðalfundi Dropans, styrktarfélags barna með sykursýki þann 14.04.2025