Stærsta verkefni Dropans er að
bjóða upp á árlegar sumarbúðir fyrir börn og unglinga með
sykursýki. Dropinn hefur starfrækt sumarbúðir fyrir börn
félagsmanna að Löngumýri í Skagafirði. Hverju sinni
hafa 22 til 30 börn
allstaðar að af landinu
dvalist að Löngumýri. Sumarbúðirnar eru ætlaðar börnum á aldrinum 8-13 ára og
standa yfir í
sex daga.
Unglingabúðirnar hafa verið haldnar fjórum
sinnum. Fyrst að Úlfljótsvatni, því næst í Danmörku og svo á Akureyri og nágrenni.
Nú síðast voru búðirnar starfræktar um borð í skólaskútu við
strendur Svíþjóðar.
Tilgangurinn með unglingabúðunum er að vinna með unglingunum og veita þeim undirbúning og fræðslu
fyrir lífið, taka á málum sem upp koma á unglingsárunum. Unglingabúðirnar eru fyrir 14 ára og eldri. Þátttakendur hafa
verið á aldrinum 14 til 25 ára.
Við undirbúning og framkvæmd
sumarbúða barna og unglinga eru eftirfarandi atriði höfð að
leiðarljósi.
Að börn og unglingar með sykursýki fái tækifæri til að hittast og deila
sameiginlegri reynslu.
Að þátttakendur öðlist meira sjálfstæði og öryggi í
meðhöndlun síns sjúkdóms.
Að styrkja sjálfmynd sykursjúkra barna og
unglinga.
Að þátttakendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess
að lifa heilbrigðu líferni.
Að gefa sem flestum sykursjúkum börnum og
unglingum tækifæri á
þátttöku.
Að allir skemmti sér og líði vel í fræðandi
sumarbúðum.
Báðar búðirnar eru uppbyggðar þannig að allir hafi gaman og
allir skemmti sér saman ásamt því að fá fræðslu. Það eru
læknar og hjúkrunarfræðingar frá göngudeild sykursjúkra á
Barnaspítala Hringsins sem vinna að búðunum með okkur og
starfa í þeim ásamt öðru frábæru starfsfólki. Út frá báðum
búðunum hefur myndast vinskapur á milli krakkanna og hafa þau
verið í sambandi sín á milli í gegn um msn, síma og jafvel
heimsótt hvort annað þó svo að þau búi í sitt hvoru
byggðarlagi.
Allar upplýsingar okkar benda í eina átt, þ.e. að
barnabúðirnar og unglingabúðirnar hafi heppnast afar vel.
Það að börnin og unglingarnir vilji fara aftur, þýðir að
þeim hafi liðið vel. Að foreldrar vilji leyfa börnunum og
unglingunum sínum að fara segir okkur að fullt traust sé á
milli aðila. Ef okkur líður vel má áætla að við séum
móttækileg fyrir þeim góða boðskap sem fræðslan og samveran
færir þátttakendum. Áhugi annarra foreldra og sykursjúkra
barna og unglinga á búðunum eykst vegna þess hve vel þær
hafa tekist.
Það er mikil vinna og kostnaðarsamt að láta
búðirnar ganga upp. En með frábæru samstarfi við
göngudeildina og þess starfsfólks sem við höfum fengið til
okkar, ásamt öllum þeim styrktarfélögum, fyrirtækjum og
öðrum aðilum sem hafa styrkt okkur, þá hefur þetta gengið
upp.
Það er unun að sjá hvernig læknar og hjúkrunarfræðingar taka
á móti börnunum okkar og hugsa um þau, eins og væru þau
þeirra eigin. Við erum mjög þakklát göngudeildinni, öðru starfsfólki
búðanna og allra þeirra sem hafa veitt okkur styrki og
aðstoð í gegnum tíðina. Hafi þau öll kærar þakkir
fyrir.