Dropans, styrktarfélags barna með sykursýki
1. gr.
Félagið heitir, Dropinn, styrktarfélag barna með
sykursýki. Það skal vera í samstöðu og samstarfi
við Samtök sykursjúkra. Mun stjórn Dropans
tilnefna a.m.k. einn fulltrúa í stjórn Samtaka
sykursjúkra.
2. gr.
Tilgangur félagsins er
Að veita öðrum foreldrum stuðning.
Að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga við að
leita réttar síns.
Að upplýsa um stöðu sykursjúkra og vekja athygli
á hagsmunasamtökum þeirra.
Að sjá um félagsstarf fyrir sykursjúk börn og
unglinga.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst
félagið ná á eftirfarandi hátt.
Að vera stuðningur við foreldra sykursjúkra
barna.
Að miðla fræðslu til foreldra, t.d. með því að
kynna nýjungar í málefnum sykursjúkra og greina
frá stöðu og þróun mála hverju sinni.
Að standa vörð um réttindi foreldra
sykursjúkrabarna, hvað varðar umönnunarbætur
o.fl.
Að annast fræðslu og upplýsingamiðlun til
félagsmanna, almennings og skóla um sykursýki.
Að sjá um félagsstarf fyrir sykursjúk börn og
unglinga (dagsferðir/helgarferðir að
sumri/vetri, útilegur, skíðaferðir, sund, keilu,
kvikmyndahús o.fl.).
4. gr.
Félagar geta þeir orðið sem eiga eða hafa börn/unglinga með sykursýki á framfæri sínu, velunnarar þeirra og aðrir sem styðja markmið félagsins. Einnig er öllum sem vilja styrkja og starfa með félaginu velkomið að gerast félagar.
5. gr.
Stjórn félagsins skipa sjö félagsmenn, fimm í aðalstjórn og tveir í varamenn. Skal kjörtímabil þeirra vera tvö ár. Skulu þeir kosnir skriflega á aðalfundi, fyrst formaður, síðan stjórnarmenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Hún getur falið einstökum félagsmönnum að vinna verk í þágu félagsins og skipað nefndir í sama tilgangi.
6. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn að hausti ár hvert.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: Skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu ári.Lagabreytingar Kosin stjórn samkvæmt 5. grein laganna. Önnur mál.
Aðalfundur félagsins er því aðeins lögmætur að hann sé löglega boðaður með viku fyrirvara. Dagskrár aðalfundar skal nánar getið í fundarboði. Tillögur um lagabreytingar, sem óskað er að verði lagðar fyrir aðalfund til ákvörðunar, skulu hafa borist stjórn þremur vikum fyrir aðalfund. 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til breytinga.
7. gr.
Félagar eru sjálfkrafa félagar í Samtökum sykursjúkra í Reykjavík eða á Akureyri og innheimtast félagsgjöld þar. Félagið getur einnig gerst aðili að öðrum samtökum innlendum og erlendum sem vinna að hagsmunamálum sykursjúkra barna og unglinga samkvæmt samþykkt félagsfundar.
Samþykkt á aðalfundi
Foreldrafélags
sykursjúkra barna og unglinga 23. október 1996,
með breytingum þann 21. október 2004 ,
þann 20. okt. 2005 og þann 30. okt. 2011
