Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki hefur starfað síðan 1995.
Höfuðmarkmið félagsins
er
að stuðla að velferð barna og unglinga með sykursýki.
Félagar geta þeir orðið sem
eiga eða hafa börn og unglinga með sykursýki á
framfæri sínu. Einnig er öllum velunnurum barna
og unglinga með sykursýki og öðrum þeim sem
vilja styrkja og starfa með félaginu velkomið að
gerast félagar.
Það að skrá sig í
Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, bindur félagsmenn
á engan hátt, þátttaka í verkefnum félagsins er undir
hverjum og einum komið.
Allt starf félagsmanna í þágu Dropans er unnið í
sjálfboðaliðavinnu.
Eitt höfuðmarkmiða Dropans er að standa að sumarbúðum fyrir
börn og unglinga með sykursýki. Einnig er staðið að ýmsum
uppákomum s.s. fræðslukvöldum, fjölskyldukvöldum, keilu,
heimsóknum í húsdýragarðinn, tivolí, svo eitthvað sé nefnt.
Félagið styrkir unglinga til líkamsræktar.
Fréttabréf er gefið út og sent til félagsmanna ásamt því að
birtast á heimasíðu félagsins.
Með því að ganga í félagið gengur viðkomandi einnig í Samtök
sykursjúkra á Íslandi. Þau samtök gefa út fræðsluefni og
standa að ýmsum verkefnum sem varða alla sykursjúka á
landinu.
Samtök sykursjúkra sjá um að rukka árgjald félagsmanna
Dropans og rennur 1/3 af því til Dropans.
Dropinn,
styrktarfélag barna með sykursýki starfar í þágu allra barna sem greinst hafa með sykursýki, hvar
sem þau búa á landinu. Við erum jafn öflug og áhugi félagsmanna er
hverju sinni.
Þegar barn
greinist með sjúkdóm hvort sem það er sykursýki eða einhver
annar sjúkdómur verður fjölskyldan fyrir áfalli. Mjög oft
veit fjölskyldan lítið sem ekkert um sjúkdóminn og þarf að
ná ansi mörgu á stuttum tíma á sjúkrahúsinu. Þannig var það
hjá okkur þegar dóttir okkar greindist með sykursýki fyir
fjórum árum síðan. Á Barnaspítala hringsins fengum við
upplýsingar um Dropann og skráði ég okkur í félagið í
framhaldi af því. Það hefur verið ómetanlegt fyrir okkur.
Dropinn heldur reglulega ýmsar uppákomur bæði með börnunum
og einnig eingöngu fyrir foreldrana. Þá er blandað saman
skemmtun og fræðslu. Fjölskyldan fór að mæta á slíkt og þá
sáum við að við stóðum ekki ein í þessu og börn með
sykursýki vorum miklu fleiri en við héldum. Á þessum
stundum hittum við aðra foreldra sem líka eru með barn með
sykursýki og lærum af þeim. Dóttir okkar hittir önnur börn
sem eru að gera það sama og hún t.d. mæla blóðsykurinn og
sprauta sig með insúlíni mörgum sinnum á dag.
Ef það eru einhverjir foreldrar sem lesa þetta og eiga
börn eða unglinga með sykursýki sem ekki eru skráð í Dropann,
hvet
ég þau hér með til að skrá sig í félagið. Það er ómetanlegt að
börnin okkar kynnist og við foreldrarnir hittumst annað
slagið og fræðumst um sjúkdóminn og nýjustu rannsóknir á
honum.
F.h. stjórnar Dropans. Þórunn Árnadóttir
Hægt er að skrá sig í Dropann, styrktarfélag
barna með sykursýki með því að fara á
Einnig má senda umsókn um aðild á netfangið
dropinn@internet.is